Æææii mín vitleysa
22.09.2006 20:06:41 / unnurh

nú er það drengurinn og skólinn

.....jæja þann 10.sept. fæddist stór og flottur strákur á sjúkrahúsinu á Skaganum. Allt gekk mjög vel en fullt hægt fyrir minn smekk;).....hann dafnar mjög vel en ekki gengur mjög vel að finna nafn á hann:(.....það er gjörsamleg allt lokað hjá okkur foreldrunum....en það hlítur að koma fljótlega:$.....
....nú svo er líka skólinn kominn á fullt og nóg að gera þar....alltaf jafn gaman.....og gengur vonandi betur nú en síðast.
....jæja verð að hætta nú barnið er alveg brjálað:cry: hjá ömmu og verð að gera eitthvað fyrir hann:P
jæja þar til næst.....bæ
p.s. takk allir fyrir barnið/okkur

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 14:10:48 / unnurh

þessir dagar líða ekki neitt...............

.....jæja þá nokkrar línur....ég get ekki sagt annað en að mér leiðist skelfilega að þurfa að bíða eftir að krílið komi sér úr bumbunni:( ......ekki það að það sé leiðinlegt á Skaganum en mér finnst alveg nóg komið.....kemst að öllum líkindum ekki í réttir en það koma aðrar á næsta ári. Annars er allt gott að frétta og heilsan í lagi.
.....hef nú ekki mikið að segja en læt þetta duga í bili, sakna bara barnanna minna sem eru á sitthvorum staðnum......og orðin leið á að bíða líka.
.......en jæja nóg í bili


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 09:12:25 / unnurh

hætt að vinna í bili......

 jæja þá er komið að því að ég setji nokkrar línur hér.

......í gær var síðasti dagurinn í vinnunni þar til 1.sept'07 alla vega á leikskólanum.:lol:......nú er bara að fara að bíða með að króinn í bumbunni fari að koma sér út:D.......það verður alla vega kominn tími á hann/hana á þriðjudaginn, þó svo að maðurinn vonist til að það komi sem fyrst.......svo hann komist í göngur:cry:......æiii ég skil hann vel þetta er örugglega voða gaman að fara í göngur......ætla að prófa það einhvern tímann;)

......annars er bara allt gott að frétta héðan......fyrirtækið hjá Stefáni og Hrannari er alveg að smella saman eða tækin að tínast inn......og kemur það bara til með að ganga vel 8|8| Stefán hefur trú á þessu og þá stend ég bara með honum í því......ekki spurning.

jæja nóg í bili ætla að fara að taka til við hreingerningar áður en ég fer að ná í strákana mína inn í Hvammstanga.

......verðum í bandi

.......bæ. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 12:55:05 / unnurh

kominn tími til

jæja nú er kominn tími til að setja nokkrar línur hér!:lol:.....það hafðist að fllytja í sveitina og er það bara nokkuð gott.....friðsælt og fínt.....annars vantar mig nú samt niðinn í ánni(verð bara að setja gosbrunn út í garð eða e-h):haha:

.....það er búið að vera svolítið um veikindi, aðalega samt á karlpeningnum á heimilinu......en þeir eru nú samt bara orðnir hressi.....við skelltum okkur til höfðuborgarinnar um helgina vorum að ganga frá sölunni á húsinu.....og gerðum ýmislegt fleira......börnin voru alla vega mjög ánægð með að komast í húsdýragarðinn og í bíó....

.....annars er nú lítið að frétta nema sumarfríið er alveg að fara að skella á, föstudagurinn er síðasti dagurinn fyrir frí.....JIBBBÍÍÍÍ8|;)8):haha::P:lol: svo er bara spurning hvort það taki sig að mæta aftur eftir frí eða hvort maður eigi bara að láta þetta gott heita fram að fæðingu.....er ekki alveg búin að ákveða mig:S....en verð að gera það fljótlega.(þetta er nú reyndar líka spurning um geðheilsuna að halda henni eða ekki).

jæja þetta er nóg af mér í bili.....bið að heilsa ykkur öllum

.....þar til næst

.....bæ


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 17:50:47 / unnurh

flutningar

jæja þá standa flutningar yfir:(......oooooo hvað það er leiðinlegt að flytja:cry:en  svona er þetta nú bara og ég flyt bara.....gistum fyrstu nóttina í nótt hjá tengdó.....það var bara mjög fínt......eigum eftir að koma okkur fyrir þar og ganga frá á hinum staðnum.....ætla að reyna að vera voða dugleg þessa viku og klára þetta.....

......annars er nú landsmót hestamanna alveg að skella á og verð að vinna þar á sunnudaginn og ætla helst að horfa á á mánudaginn......maður verður nú að fylgjast með hestinum sínum;).....sem verður að keppa þá:haha:.....

.....fyrir utan það er allt gott að frétta.....Emilía farin að æfa fótbolta og er svo að fara á leikjanámskeið......og við Ástvald bíðum eftir að komast í sumarfrí:P:P:Pþað styttist nú í það sem betur fer.....bara tæpar 3 vikur eftir.....jibbíííííí

....jæja nóg fréttir í bili bæ


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 12:52:44 / unnurh

kosningarnar búnar

.....jæja þá eru þessar blessaðu kosningar búnar:evil:.....sem betur fer:haha:....og verða ekki aftur fyrr en eftir 4 ár..... en við héldum okkar 2 mönnum inni(konu og manni:haha:) en þetta voru samt sem áður mjög jafnar kosningar hér í Húnþingi vestra.....bara mest hissa á því að x-d skildi koma 2 inn en svona eru bara kosningar og ekkert við því að gera (persónulega fannst mér fólkið á listanum fyrir neðan 2 sætið vera betra en já eins og ég segi svona er þetta bara8)).....í svona kosningum finnst mér að þetta eigi að snúast um fólk ekki lista;).....en í gærkvöldi var mjög gaman:lol:....allir í svaka stuði.....kíkti aðeins um hálf þrjú á Þinghúsið og var fljót þaðan út aftur.....þvílíkur mökkur af reyk ooooojjjjjjjjj:^) segi nú bara ekki annað.

.....við fórum í gær að kíkja á brúnskjótta folaldið okkar svona til að ath hvort kynið það væri og það var hestur:( en sætt samt sem áður....

.....en nú er bara að fara að pakka niður:(.....og reyna að byrja að flytja um næstu helgi, erum búin að fá leyfi hjá tengdó að vera þar í vetur.....þannig að ég fer héðan ekki strax:P.....

en læt þetta duga í bili, þar til næst bæ

.......vá ég gleymdi alveg að tala um að nú er búið að ráða nýjan leikskólastjóra sem tekur til starfa 1.júlí og engin önnur en hún Guðrún Lára (prófastfrú á Melstað) hlaut stöðuna:haha:.....TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ GUÐRÚN MÍN.....bara snilld......það kemur til með að vera mjög gott mál.

.....jæja læt þetta duga núna

bæó


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 22:22:02 / unnurh

jæja nokkur orð

......:lol:er ekki kominn tími til að skrifa nokkrar línur hér.....en nú er 25 vika að byrja og heilsan er bara mjög góð;) sem betur fer.....vona bara að hún Helga sé sömu skoðunar á miðvikudaginn þegar ég fer í skoðun......nenni ekki neinu veseni:!::!::!::!:......en nú er bara að vona að Bogga fari nú að koma þessu barni sínu (og Tomma) út......Bogga mundu það er á morgun.....og þú litla kríli ekki gera mömmu þinni erfitt fyrir með að láta hana bíða eftir þér.......;);););)annars gangi ykkur bara vel.....já og Eydís mín það er að koma tími á þig líka......gætir meira að segja verið á undan Boggu......hahahaha......gangi þér líka vel......vonast samt til að sjá þig í vinnunni....

.........en í annað........fannst ykkur ekki snillld með vinningslagið í júróvisíonkeppninni......ég og hún Emilía mín héldum með Finnlandi allan tímann......og okkur fannst þetta bara skemmtilegt......myndi nú samt ekki vilja hitta þá svona klædda úti á götu8|8|8|

......en er þetta ekki bara gott í bili......

bið að heilsa......seeeyaaaa


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 00:40:06 / unnurh

helgin

jæja þetta var bara frábær ;)helgi sem nú er eiginlega búin:S.......það var sko nóg að gera......í eldhúsinu á sundmótinu, held að allir hafi farið sáttir sem borðuðu hjá okkur:D.....gat líka fylgst með dótturinni synda og gekk bara nokkuð vel hjá henni;)......miklar framfarir síðan í fyrra......enda búin að æfa alveg svakalega mikið í vetur.....

.......nú svo var hún með afmæli í dag, sem gekk þetta litla vel:haha::P.......vorum á tjaldsvæðinu uppi í Hvammi og veðrið var frábært, hægt að vera úti allan tímann. Takk Skúli og Esta fyrir að lána okkur þetta frábæra hús sem þarna í Hvamminum:P.........nú annars voru "minnstu"(elstu) strákarnir8|8|8| með bensín bílana sína að leika sér þarna uppfrá og þeir vöktu svo mikla lukku hjá öllum börnunum:lol::lol:......sem fengu að sjálfsögðu að prófa;)......þannig að helgin var bara skemmtileg.....

.......nú svo fengu allir að borða áður en þeir fóru suður, þ.e. mamma, pabbi, Bjössi, Erna, Kallinn minn og Kolbrún......

.......en er þetta ekki nóg í bili ætti að vera löngu sofnuð eftir stranga helgi......en Tóta mín þú kemur bara næst.......já og Gunna það vantaði þig alveg í eldhúsið.......

bæ og góða nótt. en það er allt í lagi að kommenta eða skrifa í gestabókina:P:P:P


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 17:53:00 / unnurh

mikið að gera

.....jæja þá er sundmótið loksins að skella á:lol:.....þannig að nóg verður að gera um helgina8|......en það er alltaf mjög skemmtilegt að vinna á mótinu þannig það að verður bara gaman núna líka.....áætlaður földi barna sem keppa er rúmlega 170.....eins og ég segi nóg að gera......og hlakka bara til. 

.....einnig þarf ég að halda upp á afmæli dótturinnar þessa helgi en það reddast.....:haha::haha::haha:gerir það alltaf....get reyndar ekki haldið það á afmælisdaginn en bara daginn eftir....og hún er sátt við það:P

.....nú við á leikskólanum (Rauðagarði) ætlum að hafa foreldrakaffi hjá okkur á morgun með myndlistarsýningu og tilheyrandi.....jafnvel kannski smá söng.....það verður örugglega mjög gaman.

......annars er nú lítið að frétta.....styttist bara í flutning heim til tengdó......ætla að vera þar í sumar:lol:......verður bara gott að vera þar:).....en mér leiðast samt flutningar:(

......en jæja gott í bili

bið að heilsa ykkur öllum, þar til næst


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 18:57:45 / unnurh

áfram með smjörið

jæja ég fór í leikskólastjórann minn í gær og sagði henni að ég myndi vinna fram að sumar fríi......hún var ekkert smá ánægð....þannig að nú er ég að vinna til 7. júlí í stað þess að hætta um mánaðarmótin næstu:$sem er svo sem ágætt meðan ég veit ekki hvert við erum að flytja.....en hún tengda mamma mín var svo indæl að leyfa okkur að vera hjá sér, frá því að við afhendum húsið og meðan alla vega að ég er að vinna......vonandi verðum við nú samt búin að finna okkur húsnæði fyrir 1.júní;););).....þannig að hægt sé að flytja dótið þangað, þó svo að við flytjum ekki strax.....

en annars er allt gott að frétta, nema hvað sónarinn þurfti endilega að færa mig framar í sept. heldur en ég hélt......hann setti mig í miðjar göngur:cry:......það hentar bara ekki:$.......ég þarf að komast í réttir:evil:......verð bara að vera dugleg að halda í mér og svo má það koma á sunnudeginum eftir þær:haha::P.......verð bara að halda í vonina8)8)8)

en jæja nú er þetta fínt í bili.

bæ þar til næst


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 20:39:33 / unnurh

ooooo þessir dagar halda áfram

það er alveg órtúlegt hvað þessir blessuðu dagar halda mikið áfram(",).....mér finnst það órtúlegt að APRÍL sé að verða búinn..... .....annars er lítið að frétta héðan eins og vanalega....en ákvað að láta nú samt vita að ég er á lífi og líður mér bara vel.....takk fyrir að vera til öll... en læt þetta duga í bili... .....bæ

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 16:06:06 / unnurh

komin heim

jæja þá er ég komin heim:S........og fór beint að sofa þegar heim var komið8|.......var eiginlega bara að sofna á leiðinni heim og var alvarlega að spá í að stoppa á Holtavörðuheiðinni og hvíla augun svolítið:$ en ég hafði þetta af....

......sko við flugum til Baltimore og tókum þar bílaleigubíl (fengum ekki flug til Louisville:cry: ) og gerðum okkur lítið fyrir og keyrðum til Louisville um 600mílur:haha::haha::haha:......gistum reyndar á leiðinni og vorum lögð af stað um 5.30 á staðar tíma og komum til Louisville um 15 - 15.30 á föstudag og fórum þá beint í hestuhúsið hjá Guðmari og Gígju. Ísólfur og Mummi voru í reiðtúr.....og Stefán fór svo með þeim þegar þeir komu til baka......við hjálpuðum við að ganga frá í hesthúsinu...gefa og svoleiðis bara svona eins og gert er í hestastússi.....eftir það fórum við heim til þeirra og svo út að borða á steikhús.....við Stefán gistum á heilsuhælinu sem er á jörðinni sem hesthúsið er á......alveg æðislegur staður......nú á laugardaginn fórum við aðeins í hesthúsið og svo að skoða í búðirnar og aftur í hesthúsið eftir það.....nú þá var okkur boðið í mat í heimahús hjá vinar fólki Guðmars og Gígju.......það var rosa gaman að koma svona inn á amerískt heimili.....á sunnudagsmorgun héldum við svo af stað til baka og vorum komin í Baltimore á mánudagsmorgun með stoppi á hóteli......við þvældumst um í Baltimore þar til við áttum að mæta í flug......

.......en svona þegar horft er til baka þá var þetta rosalega gaman:P þó svo að við höfum keyrt um 1500 mílur í heildina.....okkur langaði alla vega ekki heim.....hefðum viljað komast á sýninguna sem strákarnir voru að fara að sýna á en ég segi bara "gangi ykkur vel strákar, þið verðið bara flottir"

....en nú tekur alvaran við og það er vinna á morgun......ég verð að segja að ég er fegin að það er ekki fundur í vinnunni í kvöld.

......jæja þetta er nóg í bili

bæ þar til næst.


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 19:36:27 / unnurh

USA

jæja þá er kominn tími fyrir mína að skella sér til USA með kallinum:lol:.....ooooo hvað mig hlakkar til;).....fer bara á fimmtudaginn NÆSTA.....jibbbbbbíííí8):D:haha::P......þetta verður bara stuð......við ætlum að skella okkur til Baltimore og versla svona pínu8|8|8|8|.

....annars er lítið að frétta héðan:S.....búin að fara suður síðustu tvær helgar:lol:.....ég og Emilía skelltum okkur í leikshúsið á sunnudaginn og sáum Roniju Ræningjadóttur....það var bara mjög fínt:P

....en þetta veður mætti nú alveg fara að skána svolítið.....hélt að ég myndi ekki komst inn í bílinn í morgun:S.....því það voru svona ca. meters háir skaflar sitthvoru meginn við hann 8|og þurfti að fara inn í hann farþegameginn og setja hann í gang þar.....en þetta hafðist allt að lokum og ég komst á bílnum í vinnuna;)sem betur fer.....hefði ekki nennt að labba með krakkana og þau hefðu ekki nennt því heldur.

....en jæja læt þetta duga í bili og bið að heilsa

....bæ


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 12:56:31 / unnurh

jæja þá.....

.....nú er söngvarakeppnin loksins búin......mér til mikillar ánægju. Ég klúðraði nú mínu dans ágætlega....en við fengum samt verðlaun fyrir BESTU SVIÐSFRAMKOMU......ligga ligga lá.....;).....en hún Brynja var í fyrsta sæti, Gústi í öðru, Hafþór í þriðja og jú svo fengu systurnar Eva og Helga Rós ásamt þeim Fúsa og Níelsi verðlaun fyrir bestu búninganna. Þetta fór allt mjög vel fram.....og varð voða gaman. Nú er það bara vinnan og börnin.... en ég hef bara ekkert meira að segja þannig að ég bið að heilsa. ....annars allir sem voru heima hjá mér um helgina Takk æðislega fyrir helgina´, hún var mjög skemmtileg....þurfum að endurtaka þetta sem fyrst aftur. bæ

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 12:30:50 / unnurh

það styttist...

jæja þá er æfingin í kvöld :S .....við vorum að horfa á upptöku sem við gerum á æfingu hjá okkur í gær......og viti menn8|8|8|við vorum í hláturskasti yfir okkur sálfum....bara fyndið:haha::haha::haha:held bara að þetta verði nú alveg ágætt á endanum.

gamla settið kemur í kvöld og spurning með Bjössa bróðir og Ernu.....mér skilst að það verði hópferð hjá karlmönnum upp á sleða á laugardagsmorgun......og stefnan er tekin á Lágheiðina......en mig langar með:$:$en það er því miður ekki hægt:cry:.......söngvarkeppnin gengur fyrir:$....það er generalprufa klukkan tvö og svo er keppnin klukkan níu.....þið verðið bara að óska okkur Prjónó góðs gengis....

en jæja ég er hætt í bili.

bæ.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Dagsetning
22. mars 2010